I don't want to be anything other than me...

Bara krúttlegur litli strákurinn, Jamie, í One Tree Hill í gær!InLove við Adda vorum semsagt alveg að missa okkur yfir þættinum í gær. Ég verð að viðurkenna það að þó ég telji mig svona nokkurn vegin komna í fullorðina manna tölu, þá breytist ég í smástelpu við að horfa á þessa þætti. Í hvern hringdi Lucas!!!??? vonandi Peyton!Woundering ég er ekki að meika að bíða þangað til næsta haust eða jafnvel næsta vetur eftir næstu seríu!!! haha eins og þið sjáið þá er ég að tapa mér yfir þessu! Og eigum við eitthvað að fara útí hvað bæði Nathan og Lucas eru HOT!!! Grrrr....

Jæja útí alvarlegri málefni, prófið byrjar á morgun. 2 dagar, 3x2tímar á dag með klukkutíma pásu. Byrjar á náttúrufræði, líffræði, sálfræði, almenn þekking, eðlisfræð og efnafræði. Allt þetta á morgun. Ég hlakka samt alveg til að byrja þetta og auðvitað klára þetta. Þá er það bara versla versla verlsa og svo Ak city. Ja svona allavegana ef ég á eftir að eiga fyrir bensíninu, hvar endar þessi vitleysa, í 200kr eða??? þetta er orðið ófremdar ástandPouty

Ég og Adda erum svo miklar húsmæður í okkurGetLost matardagbókin hérna fyrir sunnan hefur litið einhvern vegin svona út:

  • Subway
  • Fajitas, frá Serrano (held ég)
  • Pizza, frá Pizza Hut
  • Kjúklingréttur, frá einhverju austurlanda dóti
  • Pizza, frá Castellos
  • Núðlur, frá Nings
  • Pizza, frá Pizzan
  • Hambó, frá American style
  • Pasta, frá Hröbbu og Öddu (sko okkur, elduðum 1x)
  • Brauð

Þannig að varið ykkur, ég gæti komið rúllandi heim!!!

Enda þetta á vel völdum orðum úr One Tree Hill (en ekki hvað),

6 billion people in the world,

6 billion souls

And sometimes all you need is ONEHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú mátt fá Lucas, ég skal taka Nathan, maðurinn er náttúrulega ekkert eðilega heitur sko! og ég er ekki að nenna að bíða eftir nýjum þætti.

Guð Hrabba við erum alveg í mataræðinu hehe! við verðum samt að fá okkur Castello einu sinni enn áður en þú ferð hehe, er þaggi??

Adda (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 15:19

2 identicon

mmmm ég varð bara svöng að lesa bloggið þitt,  væri sko alveg til í að borða eitthvað af þessu !  en ef Þú færð lucas og adda nathan, hvern fæ ég þá ?   

en það er ekkert grín hvað maður lifir sig inn í þessa þætti, ég veit ekki hvað ég á af mér að gera á mánudagskvöldum í sumar :/  svo er greys líka að verða búið  ómæ ..

Hædí (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 17:09

3 Smámynd: Hrafnhildur Gréta Björnsdóttir

Adda: jú að sjálfsögðu sko:) hehe ég býst alveg fastlega við því að þetta verði svona þangað til ég fer hjá okkur

Heiða: hvað segiru um Mouth?  hehe eða Skills?? (hann er góður með sig, bara hömpast á mömmunni). En maður er alveg svakalegur með þetta, það er bara gaman... Eins gott að þetta komi á svipuðum tíma og úti!!!!

Hrafnhildur Gréta Björnsdóttir, 10.6.2008 kl. 18:44

4 Smámynd: Tinna Eik Rakelardóttir

hehe þið eruð ágætar.... ég er ennþá bara í Seth Cohen;) Ég hef ekki einu sinni horft á þetta one tree hill dæmi;) Hlakka til um helgina:)

Tinna Eik Rakelardóttir, 11.6.2008 kl. 18:37

5 identicon

hey, Heiða þú mátt fá heita hjartalækninn sem við höldum að Brooke fari að deita ;) hann er kannski betri en Mouth hehe

Adda&Hrabba (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 11:38

6 identicon

pant fá heita hjartalækninn , klárt mál

Heiða (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 14:55

7 identicon

þá er þetta allt komið á hreinnt;)

En ég er búin í prófinu, jibbí!!!! úff ég er samt svo sljó, alveg að sofna hérna...

Hrabba (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband