Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

raindrops

  • Einbeitingaskortur á háu stigi.
  • Agalegur skjálfti sem var í gær.
  • Eðlisfræði. Þarf að segja meira eða???
  • Mig langar bara obbolega mikið í föt. Ég er bara að hugsa um hvað ég ætla að kaupa mér þegar ég er búin í þessu prófi.
  • Á morgun er það félagsfræði og sálfræðiWoundering
  • Er alveg að verða massa driver í borginniPolice
  • Langar í bíó á Sex and the City
  • Bæði Adda og Magda eru búnar að bjóð mér með
  • en ég verð félagsskítur til og með 12. maí
  • Þá dreg ég the girls með mér á djammið! (4 nonblondes???Joyful)
  • Þarf að fara að læraGasp
  • langar að taka þetta próf með trukki!!!!! og komast inn!!!!Cool

Take careHeart


JARÐSKJÁLFTI!

JIiiiiii hvað þetta var furðulegt, það bara nötraði allt og titraði hérna! ég sat í rólegheitum að læra þegar allt byrjaði bara að hrisstast. Ég hélt nú fyrst að ég færi eitthvað ímyndunarveik en svo var nú ekki. Þetta var svo skrítið, mig líka svimaði ekkert smá. Svona er þetta í borg óttans.

Sódóma

Jæja þá er maður kominn í borg óttans, brjálað stuð...Undecided Adda og Margrét komu með mér suður sem var mjög gaman, það er svo leiðinlegt að keyra enn. Það var reyndar bongó blíða þegar við vorum á leiðinni og þvílíkur hiti! Og loftkælingin í bílnum mínum er kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir sko. Svo fyrsta daginn sem maður vaknar hérna þá er bara skíta kuldi og skýjað og afskaplega óspennandi veður, svo heyrir maður bara af Spánar veðri þarna fyrir norðan. Það er reyndar ágætt að það sé svona veður hérna, maður nennir ekki að læra ef veðrið er of gott skoWink

En já ég er búin með 2 daga af þessu námskeiði sem hafa bara verið fínir. Mér til mikillar ánægju var Steinþóra þarna líka þannig að maður þekti einhvern.  Ég á svo nottlega að vera að læra núna en það vanntar eitthvað smá uppá einbeitinguna. Mín bara sofnaði áðan og lætiSleeping Ég er í því núna að læra stærðfræði sem mér finnst nú bara lúmskt skemmtilegW00t ég er bara eitthvað þreytt, ég verð að reyna að komast yfir það...

Ég er svo alveg búin að ákveða það að þegar prófið er búið þá er ég á leiðinni beinnt í Kringluna eða Smáralindina (sem er hérna beinnt fyrir ofan hjá Öddu) eða bara bæði að versla mér FÖT!!!!!Police svo þarf ég líka að kaupa eitthvað handa Damma í afmælisgjöf, kallinn á afmæli á morgunWizard eru einhverjar hugmydnir? ég er alveg tóm...

En jæja þetta er nú hund leiðinlegt blogg, þið bara verðið að fyrirgefa. Nú dríf ég mig bara í því að læra!

Chå


Eurovision í kvöld og allt að gerast

Þetta er nú alveg að lyppast niður hjá mér, en það fer kannski eitthvað að lagast.

Eigum við eitthvað að tala um hvað Eurobandið stóð sig vel! ok ef ég á að vera alveg hreinskilin þá var ég nú ekki alveg að fíla lagið fyrst og svona en þau voru æðisleg. Það geislaði af þeim á sviðinu og þau voru mjög örugg og þetta var nú aldrei spurning miðað við framistöðuna. Svo er ég líka ánægð með að allar norðurlandaþjóðirnar komust áframGrin bara gleði gleði... Þetta verður mjög spennandi í kvöld.

En ég og Damian vorum að flytja úr fínu íbúðinni okkarFrown núna erum við komin í litla gamla herbergið okkar hjá tengdó, þetta er svoltið erfitt sko, koma öllu draslinu sem við erum búin að safna fyrir og svona. Þá er reyndar mjög gott að eiga mömmu sem á 2 húsWink Í vikunni sem leið erum við bara búin að vera að mála, ÞRÍFA, pakka og flytja. Og þegar það var búið tók við að raða upp í herberginu og koma öllu fyrir, fara nokkrar ferðir á Grenivík annaðhvort að ná í dót eða fara með dót. Þetta er örugglega eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert á minni ævi og maður á pottþétt eftir að gera þetta nokkuð mörgum sinnum... En við náðum að klára þetta í gær og ég ákvað að þrífa bílinn minn í leiðinni þannig að nú er allt voða hreint og fínt.

 Svo fer sko að líða að prófinu! Á morgun keyri ég suður og á mánudaginn byrjar námskeiðið. Ég er ekkert smá kvíðin fyrir þessu öllu saman, en ég vona að þetta bjargist allt og að ég komist inn!!! Ég er samt mjög fegina að Adda ætlar að koma með mér suður aftur, þá þarf ég ekki að keyra einW00t


Ok ég var kannski aðeins of fljót á mér:p

Bara snjór og læti á föstudaginn!!!

En já það er nú kannski ekki mikið að frétta síðan seinast. Það bara styttist óðum í prófið, bara mánuður!!!! en það er bara spennandiWoundering

Við fórum austur núna um helgina að kíkja á pabba hans Damians og co og jiiii hvað litli bróðir hans, sem heitir by the way Kacper, er sætur!!!!!!! ó vá!!!

P1050223

P1050231

P1050237

Take careHalo


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband