Upps and downs

  • Jólin verða komin áður en maður veit af!
  • Jólaskapið er ekkert farið að segja til sín (sem er mjög óvanalegt hjá mér)
  • Ég er orðin hooked á einhverjum sjónvarpsþáttum (Grey's Anatomy, House, One Tree Hill, Lipstick Jungel og nýju 90210 seríunni)
  • Horfi frekar á þessa þætti en að læraUndecided
  • Verð að fara að læra meira!
  • Ætla suður 4.-7. des, hitta fólk og klára að kaupa jólagjafri, jafnvel versla mér eitthvað fyrir gjafakortið í Smáralindina sem ég fékk frá systkynum mínum fyrir sunnan.
  • Langar að byrja í ræktinni en á ekki pening í augnablikinu, þar sem jólin eru að koma og svona.
  • Horfði á Juno aftur um daginn, þetta er sætasta mynd sem ég hef séð í langan tíma. Ef þið eruð ekki búin að sjá hana mæli ég hiklaust með henni!
  • Verð í fríi næstu helgiSmile
  • Langar að hætta að borða nammi og drekka gos! ég held að ég sé orðin Pepsi fíkill!!!Woundering
  • Er alltaf í vondu skapi og fúl núna undanfarið!
  • Er að spá í að fara að setja upp seríur fljótlega, kannski að jólaskapið komi eitthvað með því
  • Komin með ógeð af öllu í kringum mig, langar stundum að fara eitthvað langt í burtu þar sem maður þarf aldrei að ganga í úlpu.
  • Langar að skipta næstum því öllu útúr fataskápnum mínum!
  • Er komin með ógeð af því að reyna alltaf að þóknast fólki og hugsa um hvað öðrum finnst.
  • Er meira að segja að spá í að hætta því
Jæja þetta er nú orðið agalega "hresst" blogg, vona að það næsta verði skárra...Alien


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband