Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Afsakið

Ég er nú búin að vera ansi léleg í þessu bloggi. Það er vegna þess að ég og Damian vorum að flytja í nýja íbúðSmile Við erum byrjuð að leigja í Akursíð 4 sem er bara snilld! Við erum ekkert smá ánægð með þetta. Mamma er búin að láta okkur hafa næstum allt! Sófa, sófaborð, sjónvarpskáp, eldhúsborð og stóla, ísskáp, uppþvottavél, þvottavél, svefnsófa í litla herbergið og fullt af svona litlu dóti, eldhúsáhöldum og svoleiðis. Það eina sem okkur vantar er gott rúm! Við eigum bæði rúm sem eru 1.20Shocking sem er ekki aldeilis að gera sig!!! og þau eru líka bæði orðin hálf léleg þannig að núna er það bara að safna sér fyrir góðu rúmi svo ég hætti nú að hrinda Damian framúrW00t hehe... En íbúðin er alveg frábær. Það er meira að segja gestaherbergi og allur pakkinn.

 

Annars er nú búið að vera voða lítið að frétta. Ég fór nú loksins í klippingu og litun og þorði nú ekki að fara í dökkt, kannski næst. Og un helgina var ég að passa bræður mína sem eru nú meiri skæruliðarnir! En við fórum í bíó, sund, heimsókn til ömmu og afa, heimsókn til langömmu og leigðum DVD þannig að þetta var bara ágæt helgi. Svo verð ég að vinna næstu helgi.

En þetta verður bara stutt í dag, ég þarf að drífa mig og kaupa hitt og þetta, klósettbursta og svona skemmtilegt. Verið dugleg að kvittaHalo


Jibbí

Það er hátíð hjá mérW00t ég hitti mínar yndislegu vinkonur í gær og þær gáfu mér pening í afmælisgjöf sem ég á að eyða í mig þannig að ég get farið í klippingu og litun og ég er að sjálfsögðu búin að panta mér tíma! Takk æðislega elskurnar mínar!!!Kissing Svo gaf Tinna mér líka alveg geggjað flott listaverk eftir sig sem ég er ekkert smá ánægð með!Joyful Við hittumst í gær og elduðum saman pasta sem við borðuðum held ég allar yfir okkur af! Loksins að við gerðum þetta stelpur mínar og það vantaði bara 4. hjóliðWink það var alveg kominn tími á gott spjall og svona!

Vá ég er samt eitthvað rugluð, mig fór að dreyma um það í nótt að ég væri nýbúin í klippingu og litun og var svo ánægð. Ég er líka ekki búin að fara í 5 mánuði sem hefur aldrei gerst áður!!! en þá kemur ein spurning, dökkt eða ljóst!?Dökkt

P1040654

Endilega smá hjálp takkHappy

Og kvitta svo!


Alltaf að prufa eitthvað nýtt

Mig langaði enn og aftur að prufa nýja bloggsíðuTounge ég veit ekkert hvort þessi eigi að vera eitthvað betri en hinar en mig langar samt að prufa þettaWink þannig að á næstunni ætla ég að minnsta kosti að blogga hérna. Ég er búin að setja inn nokkrar myndir úr interrailinu sem eru hérna neðar á síðunni. Ég ætla nú líka að vera aðeins duglegri að blogga heldur en ég hef verið og núna ætla ég bara að gera nokkra punkta um hvað hefur verið í gangi undanfarið:

  • Ég átti afmæli
  • Við Damian trúlofuðum okkur (á afmælis daginn)InLove
  • Ég fór á króksmótið að horfa á litla bróður minn keppa í fótbolta og hann var ekkert smá flottur
  • Passaði endalaust fyrir mömmu
  • Ég og Damian fórum til Breiðdalsvíkur til pabba hans og höfðum það gott
  • Fór í stelpu party til Helgu
  • Fór með stelpunum niðrí bæ
  • Byrjaði að vinna á Hlíð og mér líkar það mjög vel
  • Ég og Damian erum búin að vera að leita okkur að íbúð og höfum ekkert fundiðCrying

Svo það sem mig langar að gera:

  • Finna litla sæta íbúð sem við getum leigt!!!
  • Fara í klippingu og litun!
  • Fara í plokkun og litun!
  • Kaupa fullt af fötum!

Jæja þetta er fínt í bili en ef þið vitið um litla íbúð, kannski 50-60fm þá endilega látið mig vita! þetta er ekkert að ganga hjá okkurShocking


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband