Í sól og sumaryl

Versló búin og áður en maður veit af verður sumarið það líkaPinch það er samt búið að vera alveg geggjað veður undanfarið! bara eins og maður sé í útlöndum.

En allavegana það er ekki mikið að frétta af mér. Ég er bara búin að vera að vinna síðan ég kom norður og haft það gott. Versló er svo búin að vera mjög fín, ég gerði nú ekki neitt á fös kvöldið en á lau kvöldið fór ég, Adda og Tinna á Friðrik V eftir að vera búin að drekka nokkra Mojito og svo niðrí bæ það var alveg ágætt en við entumst ekki lengi. Ég var komin heim um 3. Það var líka alveg viðbjóslega troðið í Sjallanum, það var ekki hægt að vera þarna, maður var bara troðinn niður. Það var samt alveg geðveikt gaman meðan við vorum að borða og svona, þá var mesta stuðiðPolice

En í gær fórum við svo á Akureyrarvöllinn til að byrja með og svo löbbuðum við heim, tókum eitt tívolítæki á leiðinni en fórum svo til Öddu og tókum okkur til og svona. Þar var líka drukkið Mojito (sem ég btw ELSKA). Við fórum svo svoltið seinnt niðrí bæ og Nadine kom með okkur í þetta skiptið. Við byrjuðum að fara á Kaffi Ak en vorum ekki alveg að fíla okkur þar og enduðum á Amour og þar var geðveikt gaman!!! Ég hef bara ekki skemmt mér svona vel lengi! Við vorum líka að fara heim um 6 leitið sem hefur ekki gerst mjög lengi hjá mér.

Dagurinn í dag er svo bara tekinn í letiSleeping nenni ekki neinu og er alveg heví þreytt.

 

Á næstuni er svo afmælið mitt:D og svo ætlum við mamma að fara í smá dekur saman, nudd eða eitthvað svoleiðis. Og svo er það bara að njóta þess að vera í fríi og þurfa ekki að vinna aftur fyr en í septemberBandit

En jæja ég er of þreytt til að vera að standa í þessu. Bara take care


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tinna Eik Rakelardóttir

Til hamingju með afmælið i dag elskan...geggjað að hitta á þig þarna í gær vona að þið hafið skemmt ykkur vel á Amour:)

Tinna Eik Rakelardóttir, 10.8.2008 kl. 21:31

2 Smámynd: Hrafnhildur Gréta Björnsdóttir

Takk elskan:* já það var alveg magnað:D það var allavegana meira fólk þar en á Kaffi Ak, við skemmtum okkur mjög vel;)

Hrafnhildur Gréta Björnsdóttir, 11.8.2008 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband