Rafeindaskipan
3.6.2008 | 11:28
- Geggjað veður í borginni núna
- og ég sit inni að læra
- hvar lærðu Reykvíkingar og bara Höfuðborgarbúar að keyra á hringtorg?!? fólk er algjörlega útá túni hérna með það. Bara svínar fyrir og keyrir bara á einhverri akrein inná og einhverri útaf. Skamm skamm.. fariði á námskeið!
- Heiðmar kærastinn hennar Öddu er farinn útá sjó þannig að við erum bara búnar að vera 2 heima
- Keyptum bestu pizzu ever!! mmmmm... á Castello, eldbakaðar og bara geggjaðar!
- Fór í mat til pabba og Dídí á laugardaginn og fékk mjög góðan mat!
- Eigum við eitthvað að ræða það hvað systkyni mín eru orðin stór, sérstaklega systir mín! það verður sko ekki langt í að hún nái mér og hún er 10 ára!!! algjör risi.
- Á fimmtudaginn verð ég svo aðeins að passa fyrir pabba, það verður ágætt aðeins að gera eitthvað annað en að sitja inni og læra.
- Væri alveg til í að fara í sund núna en snillinn ég gleymdi sundfötunum á Ak.
- Maður er búin að vera svo "ferskur" og "smart" undanfarið í íþróttabuxunum og svona
- Erum við að tala um SVAKALEGAN eða AGALEGAN loka þátt í One Tree Hill næsta mán! get varla beðið... Lucas skamm skamm!
- Best að vinda sér í Efnafræðina.
Take care
Hehe varð að bæta einu inn, hversu skondið er þetta: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/06/03/logregla_a_slodum_isbjarnarins/
Það er augljóslega alltaf hægt að koma manni á óvart!! þvílík snilld, bjössi bara mættur
Ljón: Farðu yfir allt sem sem þú lærðir í síðasta mánuði um að spyrja spurninga, hlusta vel og ætla eins lítið og þú getur. Þú notar lærdóminn og það svínvirkar.
Hmmmm... á maður eitthvað að hlusta á þetta
Athugasemdir
Vííí ég hlakka svo til þegar þú kemur og adda líka og við hittumst 4 saman, er samt varla að trúa því að það sé að fara að gerast .. við erum alltaf svo busy ;)
haltu áfram að vera dugleg eins og þú ert búin að vera ..
kiss kiss
hædí
Heiða (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 17:15
Já það er alveg kraftaverk ef það tekst hjá okkur að hittast:D vá hvað er eiginlega langt síða síðast??? svona allar :p
Hrabba (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 17:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.